föstudagur, júlí 30, 2004

ooohhh bölvuðu kanar

oohh þessir kanar eru alveg ótrúlegir...þykjast ekkiskilja mannþegar maður kerir sitt besta í að gera sig skiljanlegan.. á þeirra máli bæ ðe bæ...
ein kona kom og ætlaði að kaupa póstkort sem kostar 80 krónur  og ég segi við hana, thank you thats eití plís...og þá segir hún WWHHAAA og ég segi eití plís whaaaa kjén jú wrærid dáún og ég skrifa 80 og þá segir kellingarbeyglan...ooooooaaa eirí
oohh glataður hreimur ég var manneskja í að gubba uppí konuna...ooojjj

raven out

Prjónar and Pokerpennies!!!!

Jæja þá er loksins komið að því.....maður ætlar að láta reyna á listræna hæfileika sína og byrja að prjóna. Ég get nú ekki sagt að fólkið í kring um mig hafi mikla trú á mér en ég ætla nú samt að reyna.
Mín ástkæra frænka hún Ásdís ætlar að vera mín stoð og stytta í þessu öllu saman þar sem ég veit ekki einu sinni muninn á sléttu og brugnu. En innst inni í hjarta mínu held ég að ég geti þetta. Ég ætla nú ekki að byrja á neinu flóknu...byrja á teppi. Held að allt annað sé of flókið fyrir mig. En ég er nú samt orðin soldið spennt sko.
Annars er nú bara eitt annað sem ég vil segja og það er: ég vann í Gaur í gær hjá familíunni!!!!!!
Ég var svo glöð, vinn svo sjaldan e-ð.
Jæja er rokin í vinnuna að afgreiða stressað fólk á leiðinni út úr bænum. Bless í bili og hafið það gott yfir helgina.

Guðrún pokerpenny

þriðjudagur, júlí 27, 2004

gútí mornings

ein forvitin.. hvað á að gera um versunarmannahelgina....
kv. ásdís
ps. rigning um allt land ;)

mánudagur, júlí 26, 2004

sunnudagur, júlí 25, 2004

gobbiddigobbiddigobb

Ég fór í göngutúr um daginn á Þjóðvegi 1, það er nú ekki frásögufærandi nema hvað að ég sá þarna nokkra hesta á beit í grasinu svona um 16 kvikindi. ég leit í kringum mig til að finna heimilið þeirra en einu húsin sem ég sá var staðarskáli og svo hús sem eigendurnir búa í, og ekki vissi ég til þess að þau ættu hesta. svo sneri ég við frá göngunni miklu og spurði manninn, einn sem stjórnar hér, hver ætti nú þessa hesta. hann sagði að þau ættu þá og væru með 5, að mig minnir, tamda hesta uppfrá sem ég mætti alveg fara á þegar ég vildi. ég hoppaði hæð mína af gleði og vona bara að ég eigi eftir að gera það, sem oftast.

vildi bara monta mig smá, ekki það að einhver eigi eftir að skoða þeta því þið eruð svo drullulégleg að kíkja á bloggið ykkar og skrifa þið letifólk

blessbless
raven

föstudagur, júlí 23, 2004

DJÚPA DJÚPA DJÚPA DJÚPA DJÚPA

 jæja þá er það loksins komið á hreint...
ég kannaði málið og jújú auðvitað höfðum við rétt fyrir okkur þ.e allir nema guðrún, nammið er ein djúpa og margar djúpur, alveg eins og möndlur. að segja ég ætla að fá einn djúp er bara kolrangt. þar hafiði það kæra fólk
blessbless
ofurdjúpan
raven

Hönnunarglæpur!!!!!!

Hver vogaði sér að breyta útliti síðunnar, án leyfis frá hönnuðinum sjálfum????????
Ég krefst svara!!!!!!!

fimmtudagur, júlí 22, 2004

1 á nægð(i) öll(um) í gerðinu

þetta var svo gaman... mér finnst að við eigum að fara aftur og þá væri ég til í að fara aftur..... aftur og aftur.... mér finnst að við verðum að gera eitthvað meira í sumar.,.... kannski bara..... einn punkt enn. en samt aðeins meira...................... eða bara næsta vetur

en þetta var svo gaman að vera svona í stemminum

blæ
pjása

Ég er glöð!!

Mikið afskaplega skemmti ég mér vel á Barli.....ohhhh ég vildi að Barl þyrfti aldrei að enda :( Þetta var alveg með endemum skemmtileg ferð og þá sérstaklega óvissuferðin. Mér fannst Ásdís sýna endalausa hetjudáð í þessari ferð, bæði með því að fara á hestbak og svo líka með því að hoppa í hylinn. Helga Magga sýndi endalausa óheppni með sínum aðgerðum sem renna seint úr minni :) Ég og Ómar erum greinilega mest með hvort annað á hreinu, þar sem við unnum leikinn sem HMH og Andi komu með. Sigurjón stóð sig afskaplega vel sem brennustjóri og hér með skipaður í það hlutverk um ókomna framtíð. Andi var án efa með eina þá stærstu og þykkustu steik sem um getur í sögu grillmenningarinnar. Það kom í ljós ný hlið á Gunnari þegar hann reyndi sem hann best gat að bjarga Angantý, Gunni er greinilega mikill dýraverndunarsinni.

Allavega snilldarferð í alla staði og ég get ekki beðið eftir að fara í næstu ferð.

Kveðja Guðrún H 

mánudagur, júlí 19, 2004

Þá er þetta allt yfirstaðið

Sælt fólk og takk fyrir alveg geggjaðan Barl þetta var sko gaman og eftirminnilegt. eitt er mér samt algjörega óskiljanlegt...hvernig getur verið untitled post á laugardeginum klukkan 09,08 þegar allir eru sofandi (nema kannski Angantýr) og hvergi tölvusamband?? En allavega vil ég hrósa ásdísi og ómari sérstaklega fyrir mikla hetjudáð og helgu möggu fyrir hið óskiljanlega...þið vitið hvað ég á við. mér þykir það mjög leitt að háðir voru 3 leikir en aldrei unnu við gunnar neitt. Skemmtilegt ofmnæmið líka sem ég krækti mér í og flugurnar sem bæ ðe bæ fylgdu mér hingað í sveitina.
 
En mikið er ég nú fegin að hafa farið svona snemma og á undan öllum til þess að ná rútu...sem ég síðan missti af. ég hefði sko alveg verið til í meira fjör og svona um 3.stigs bruna eins og helga magga. En ég græddi auka nótt í hfj sem er bara mjög æðislegt.
 
þetta er sko pottþe´ttur Barl hópur og ég hlakka mikið til að fara í aðra ferð með  ykkur elsku fólk. Þá er bara komið að ykkur holy og andi eða ykkur gh og mr.halliwell. þó ég eigi nú ekki von á því að faraí aðra ferð á næstunni þar sem þið eruð að flýja land og e-ð í þeim dúr.
 
ég segi bara TAKK FYRIR OKKUR...
lifi Barl
Hraf og Gunn

laugardagur, júlí 17, 2004

miðvikudagur, júlí 14, 2004

Ég hlakka til Barls!!!!!!

Sælir allir saman!!!
Nú erum við bara að fara, ekki á morgun heldur hinn... mikið er ég orðin spennt. Ég er nú ekki á því að við eigum að vera að hengja okkur í e-r veðurspár...bara vera við öllu búin, allan tímann.
Ég og Ómar sjáum um grillið. Erum með grill, kol og vökva. Þannig að þið þurfið ekki að hafa áhyggjur af því. Bara að mæta með e-ð á grillið að sjálfsögðu. En er ekki stemming fyrir því að grilla bæði kvöldin? Bara kannski e-ð létt (svona eins og hammara) á föstudeginum og svo kannski steikur á laugardeginum....þetta er bara svona hugmynd en auðvitað ráða allir hvað þeir eta. Annars þá heldur bara áfram countdown núna og aðeins 2 dagar til stefnu.
Til hamingju með afmælið Gunni!!!!!!!

Góða nótt og sofið rótt....og dreymið Barl

Kv. Guðrún

Ég hlakka til Barls!!!!!!

Sælir allir saman!!!
Nú erum við bara að fara, ekki á morgun heldur hinn... mikið er ég orðin spennt. Ég er nú ekki á því að við eigum að vera að hengja okkur í e-r veðurspár...bara vera við öllu búin, allan tímann.
Ég og Ómar sjáum um grillið. Erum með grill, kol og vökva. Þannig að þið þurfið ekki að hafa áhyggjur af því. Bara að mæta með e-ð á grillið að sjálfsögðu. En er ekki stemming fyrir því að grilla bæði kvöldin? Bara kannski e-ð létt (svona eins og hammara) á föstudeginum og svo kannski steikur á laugardeginum....þetta er bara svona hugmynd en auðvitað ráða allir hvað þeir eta. Annars þá heldur bara áfram countdown núna og aðeins 2 dagar til stefnu.
Til hamingju með afmælið Gunni!!!!!!!

Góða nótt og sofið rótt....og dreymið Barl

Kv. Guðrún

nú er þetta alvara!!

jæja góð skyldmenni....wohle gute Verwandte
nú styttis í mestu skemmtun sem þið munuð upplifa. Unnur tilkynnti mér það að hún og hennar maki munu ekki samgleðjast okkur á þessum merku tímamótum unnarbrautarfjölskyldunnar, það er bara þeirra höfuðverkur því skemmtunin mun vera í hámarki!, en ég mun samt reyna að halda í fyrra plan. Þannig er málið að ég planaði ferð fyrir 10manns en þar sem einungis átta munu þátttaka gætu plön breyst lítillega en ég mun láta vita með fyrirvara!! Hafið ekki áhyggjur,,þetta verður samt gaman:) ég minni fólk bara á að fylgjast með veðri og klæðast eftir því..ekki er þörf á regn/úðafötum nema það rigni.
hasta luego.....Tschüß,bis bald
Raven

mánudagur, júlí 12, 2004

Kæri Barl, ég krefst skýringa!!!!

Kæru allir þátttakendur í Barli og þá sérstaklega skipuleggjandinn!!!
Hér sitjum við fjögur í Flúðaselinu, ekki með neitt í höndunum um Barl. Engar upplýsingar eru komnar í hús og við erum ekki sátt. Fjöldanum öllum af spurningum er ósvarað.... hvað kostar? eigum við bara að mæta með stígvél? hverjar eru reglurnar á Barli? verður löggæsla á svæðinu? þessum spurningum og fjölmörgum öðrum vantar okkur svör við. Nú styttist óðum í þessa miklu samkundu og mannskapurinn fyllist bara af stressi með þessu áframhaldi :)
En annars þá erum við Ómar allavega orðin svaka spennt og erum á fullu að undirbúa....þess vegna er mjög nauðsynlegt að við fáum endanlegt svar frá Unni og Jóni um hvort þau mæti (þar sem leikurinn okkar krefst mikils undirbúnings og er því lokatala á fjölda þátttakenda afar nauðsynleg), við heyrðum því nefnilega fleygt að Jón þyrfti að keppa og þau myndu því sennilega ekki mæta. En eins og ég segi...Unnur þú bara commentar á þetta hjá mér og segir hvort þessi saga eigi við rök að styðjast.
Anyways þá læt ég þetta duga í bili og segi bara.....

ÁFRAM BARL

KV. Guðrún H

laugardagur, júlí 10, 2004

Angenehm Andreas Ivo Mϋller

Liebe Andi,
Jetzt kann ich sprechen deutsch ser gut. Ich habe viele Briefmarke und kann sprechen viele ϋber Nordwest- Island und das ganze Land. Ich freue mich darauf, ihn zu sehen.
danke schön
Mit besten Grϋβen
Raven

fimmtudagur, júlí 08, 2004

Welcome Andreas Ivo

I just decided to have one posting in English so that my beloved boyfriend can read and feel apart of this lovely webpage that we have here. So my darling Andi, here we post everything that we have to say and comment about "barl" the beautiful name of this trip of ours. Such as what we have to bring, and how much it will cost and just excite each other up. Please my baby you can comment as you wish on everything we say (eventhough you might not understand it) but feel free.
I am really looking forward to this trip and am very excited about knowing what the whole surprise is...... So my darling sisters, causins and monkeycausins and brothers in laws, and of course my boyfriend, have a good day and I look farward to seeing you in 8 days. And some of you even sooner.

Love you all
Helga Magga

DRESSMANN KRINGLUNNI, DRESSMANN LAUGARVEGI

sælar,
dommdolelelum,dommdommdolelelum, ég verð aðeins að fá að tjá mig um þessar dressmann auglýsingar!!! hvað er málið? e-r plebba kallar með þetta líka skíta sólheimaglott eins og Skúbbí vinur hans Tomma.

ég frétti að uppl.um Barl væru komnar í hús...hvernig líst fólki almennt á þetta??? umgjörð og innihald?

í gær fékk ég þessa yndislega skemmtilegu og óvæntu heimsókn frá frjóhirzluforingjanum sjálfum og rithöfundi með meiru, Guðrúnu Helgadóttur, spice girls aðdáandanum mikla Ómari Daníel HALLIWELL, og skeitaranum Einari Hawk. þetta voru með eindæmum skemmtilegar klukkustundir sem við eyddum hér í sveitinni og ég þakka ykkur innilega fyrir þetta program. og þvottaefnið að sjálfsögðu. Og einar og guðrún fá sérstakar þakkir fyrir að prumpa svona skemmtilega í íbúðinni minni. svo á morgun kemur Bergmanninn svo það er nóg að gerast hjá mér og ég er sjúklega ánægð með þetta allt saman. (takk fyrir bílinn pabbi)

ég hlakka svo til Barls og ekki bara utilegunnar og óvissunnar...heldur líka að hitta hinn víðförla Jón.... kominn tími til.
skilaboð til Jóns: Ég veit að það hvílir á þér mikil pressa núna, að standast væntingar okkar, en ég efast nú ekki um að þú tekur þetta með trompi og stenst allar okkar þrautir, alveg eins og sannur ír-ingur.(er ég kannski sú eina sem hef ekki hitt þig? gæti vel verið ég er alltaf svo eftir á) það ´fellur vel í kramið að dansa við söng ásdísar(eða syngja sjálfur) og dilla vel rassinum. Endilega hafðu það í huga.

ÞRöng Þröng, troddu þér í gegnum göng göng.
Raven

miðvikudagur, júlí 07, 2004

nojnoj,,bara meme með ullinni og öllu....

kæru frænkur, systur, makar og aðrir sem koma málinu ekki við.
innan skamms munum við fá í hendurnar upplýsingar um barl!!! en eitt gleymdist að taka fram. Stígvél koma sér einkar vel í Barli og þar sem þetta er óvissa get ég ekki sagt afhverju en eitt er víst að ég mun taka stígvél með.
takktakk
gúrígúrígúrígúrí:D
raven

þriðjudagur, júlí 06, 2004

Pirringur!!!

Hvað er að gerast hérna???? Af hverju er mannskapurinn svona pirraður út í bloggið? Mér finnst ég vera sökudólgurinn þar sem ég bjó til og hannaði bloggið. Látið mig endilega vita og ég sé hvað ég get gert. Kannski er e-ð hægt að laga þetta. Annars þá heldur bara niðurtalningin áfram og núna eru bara 10 dagar þangað til við förum......Hrafnhildur stendur sig eins og hetja að plana og prútta og við hin getum ekkert annað gert en að bíða bara spennt, jú og ég get farið að leita að lyklinum að Hálsakoti.....sem ég held að ég sé búin að tína/týna :s
Ekki segja neinum.

Jæja kveð í bili

Guðrún H

mánudagur, júlí 05, 2004

hvað er að þessu

bloggi

55

Kveðja frá Unni

verðmiði á barl....

jæja gott fólk....núna þurfiði að vera dugleg að kíkja á bloggið og commenta því ég hef einungis tæpar 2 vikur í planleggingu og verð að vita ykkar hug sem allra fyrst!!!! þannig er að það sem óvissan mun kosta er 2500 isl.kr. eða 28 evrur. þessi ferð er ólík hinni ferðinni að því leitinu til að hún er kostnaðarsamari, bensínkostnaður meiri og göngin eru dýr, en ég vil nú samt athuga hvort það eru einstaklingar sem eru reiðubúnir að eyða nokkrum hundraðköllum í viðbót svo fríðindin verði meiri. Þá er ég t.d að tala um tilbúið nesti fyrir keppendur óvissuferðarinnar, verðlaun fyrir þá sem standa sig vel o.s.frv. ég veit að þetta er mikill peningur og algjörlega undir ykkur komið hvort við bætum e-u aukalegu við. ÉG reyni eins og ég get að hafa þetta sem ódýrast og auðveldast. vinsamlegast commentið á þetta og látið mig vita hvað ykkur finnst, byrjunarverð er 2500kr, er það of mikið? hversu miklu eruði tilbúin að bæta við?
að lokum vil ég minna alla á að finna leik, já einmitt hvert eitt go einasta par á að koma með leik fyrir hópinn. Í síðustu ferð voru allir leikirnir hver öðrum skemmtilegri og vil ég gjarnan sjá það aftur. Ekki verður gerð athugasemd þó sami leikurinn verði leikinn þessa helgi eins og helgina í febrúar. Einnig vil ég minna guðrúnu og ómar á að taka með sér frænkudjamms lagið, shake ur ass.......
jæja ég held að þetta sé nóg í bili.

blessbless
Raven

Vandræði

Sælir hálsar.....

þetta er nú svona aðallega prufa, því mér finnst ég aldrei getað publishað póstinum mínum. Afar undarlegt :(
Allavega....er orðin rosa spennt fyrir ferðina og tilkynni hér með að það eru 11 dagar í brottför :)

Respect
Guðrún H

sunnudagur, júlí 04, 2004

1 og aftur þá kem ég ínn og skrifa um hann tóta minn

Góðan dag ég vildi bara endilega vera með í að segja eitthvað mér finnst þetta allt svo skemmtilegt og ég er byrjuð að safna hárum undir hendurnar svo liberto geti verið með.........

Aftur varðandi barl...

voðalega finnst mér þið léleg að skrifa....það mætti halda að þið ættuð ykkur líf!!!! en jæja ég er allavega komin með frí helgina 16.-18 og er byrjuð að plana helgina alveg á fullu og ef allt gengur eftir þá verður þessi ferð alveg mögnuð:) já ég veit ég er snillingur:) núna þurfa bara allir að leggjast á eitt og finna góða áningu fyrir Tómas Þorra... áning, já eg veit..maður lærir svona orð í sveitinni.

jæja ég verð örugglega fyrst til að svara þessum pósti eins og alltaf.

blessbless
Raven

hey ætar hjalti með???

föstudagur, júlí 02, 2004

varðandi barl

já..ég held að ég geti lýst því(með Ý) yfir núna að frænkuferðin verður farin í Hálsakot helgina 16-18júli hvort sem ég fer með eða ekki. nú þarf bara að panta hálsakot því eins og allir vita er rifist um villuna. ég reyni og geri mitt besta í að gera þessa ferð eftirminnilega fyrir ykkur en mun líklega þurfa örlitla hjálp..því ég er föst í norðri. ef e-r hefur e-ð um þetta að segja speak now or forever hold your peace!!!

takktakkogbless
raven upplýsingafulltrúi

mjög fyndið...krefst lesturs...

ooohhhhh ég var búin að skrifa alla söguna en tókst að klúðra puplishingunni.
jæja þá skrifa ég hana bara aftur..ég hef ekkert annað að gera.
en þar sem ég er ein í sveit þá verð ég tíður gestur og blogger á þessari síðu.
en þannig er mál með vexti að ég er búin í vinnunni klukkan sex og þá loka ég upplýsingastofunni miklu. en eftir það sit ég oft hér og skoða netið eða tala við vel valið fólk á msn-inu. svo núna áðan um klukkan sjö þá kemur inn til mín maður(kiddi) og segir að þessi maður sé að leyta að mér(sem stóð hliðiná honum). ég hafði aldrei séð þennan mann áður og hann leit mjög útlendingalega út. svo spyr hann mig hvort ég tali spænsku og ég segist gera það smá. og þá var þetta maðurinn hennar helgu í Burugos:) heheheh hún hafði sent hann hingað að tala við mig:) hehehehehe við töluðum í smá tíma og svo komu vinir hans og ég talaði við þá líka....heheheh ýkt fyndið ég dældí í þá bæklingum og ég veit ekki hvað og hvað:) mér fannst þetta allavega mjög fyndið og vona að ykkur sé skemmt líka.

vonandi verða allir mínir dagar með svona óvæntri uppákomu:) svo núna bíð ég bara eftir gunna hann ætlar að koma til mín og vera allavega eina nótt:) jjjjiiiiibbbbýýýýý

jæja bless í bili...og þetta er fyndin saga..ef þið hlægið ekki þá bara hafiði ekki húmor.

adios
Raven

We are changing history of all mankind

Frekar ánægð með þetta, núna get ég líka verið í sambandi frá útlandinu þegar ég flyt út......

P.s ég elska Óla Bjart

kv.
Holy

takktakk kæri Davíð

ég vil nú byrja á því að þakka henni gullfallegu sytur minni fyrir að búa til þetta blogg. Við skulum nú ekki gleyma okkur í gleðinni með agli og barli.. munum líka eftir óla bjarti hann er á lífi..hann er núna á leið til akureyrar, leit við hérna hjá mér í hrútafjörðinn áðann og keypti sér ullarhúfu. ég er mjög glöð að eiga loksins blogg..ég kann samt ekkert mikið á þetta en vona bara að þessi skilaboð skili sér. jæja núna er allt að fyllast af þjóðverjum verð að fara....hey áðan var fullt af sjpanjólum mér til mikillar gleði:)

adios
Hrafnhildur

Velkomnar!!!

Elsku bestu frænkur....verið velkomnar á nýjar slóðir...vonandi mun þessi síða hjálpa okkur að vera í sambandi, plana ýmsa viðburði og einfaldlega bara hjálpa okkur að auka á frjósemi heilans. Verum nú virkar á gervihnattaröld!!!

Kv. Guðrún H