Ég er glöð!!
Mikið afskaplega skemmti ég mér vel á Barli.....ohhhh ég vildi að Barl þyrfti aldrei að enda :( Þetta var alveg með endemum skemmtileg ferð og þá sérstaklega óvissuferðin. Mér fannst Ásdís sýna endalausa hetjudáð í þessari ferð, bæði með því að fara á hestbak og svo líka með því að hoppa í hylinn. Helga Magga sýndi endalausa óheppni með sínum aðgerðum sem renna seint úr minni :) Ég og Ómar erum greinilega mest með hvort annað á hreinu, þar sem við unnum leikinn sem HMH og Andi komu með. Sigurjón stóð sig afskaplega vel sem brennustjóri og hér með skipaður í það hlutverk um ókomna framtíð. Andi var án efa með eina þá stærstu og þykkustu steik sem um getur í sögu grillmenningarinnar. Það kom í ljós ný hlið á Gunnari þegar hann reyndi sem hann best gat að bjarga Angantý, Gunni er greinilega mikill dýraverndunarsinni.
Allavega snilldarferð í alla staði og ég get ekki beðið eftir að fara í næstu ferð.
Kveðja Guðrún H

1 Comments:
ég gerði sem sagt ekkert merkilegt í þessari ferð... :D en guðrún mín ég er sammála þer þetta var virkilega mjög skemmtileg ferð ég ætla að hringja á morgun í freyju og fá botn í þetta djúpu mál!!!!
ciao
raven
Skrifa ummæli
<< Home