gobbiddigobbiddigobb
| Ég fór í göngutúr um daginn á Þjóðvegi 1, það er nú ekki frásögufærandi nema hvað að ég sá þarna nokkra hesta á beit í grasinu svona um 16 kvikindi. ég leit í kringum mig til að finna heimilið þeirra en einu húsin sem ég sá var staðarskáli og svo hús sem eigendurnir búa í, og ekki vissi ég til þess að þau ættu hesta. svo sneri ég við frá göngunni miklu og spurði manninn, einn sem stjórnar hér, hver ætti nú þessa hesta. hann sagði að þau ættu þá og væru með 5, að mig minnir, tamda hesta uppfrá sem ég mætti alveg fara á þegar ég vildi. ég hoppaði hæð mína af gleði og vona bara að ég eigi eftir að gera það, sem oftast.
vildi bara monta mig smá, ekki það að einhver eigi eftir að skoða þeta því þið eruð svo drullulégleg að kíkja á bloggið ykkar og skrifa þið letifólk blessbless raven |

3 Comments:
þú ert bara heppið kvendi.. jahá! heppið kvendi segi ég nú bara aftur.. og barasta til hamingju og lukku með þetta!! hvernig væri þá að bjóða okkur í heimsókn og við förum á hestbak, ég er nú orðinn soddan hestanörd eftir Barl.. vei.. Barl..
kveð í bili, Ómarus Daníelus
heyrðu góða, við erum bara ekkert letifólk í skrifum....við erum bara ekki föst á þjóðvegi 1 fyrir framan tölvu með enga kúnna.......já góða ekkert svona píp. Til hamingju með hestana, megirðu eiga margar góðar og athyglisverðar hestaferðirnar.
þetta var guðrún sem gleymdi að skrifa nafnið sitt hérna fyrir ofan. sorry allir.
Skrifa ummæli
<< Home