mánudagur, júlí 12, 2004

Kæri Barl, ég krefst skýringa!!!!

Kæru allir þátttakendur í Barli og þá sérstaklega skipuleggjandinn!!!
Hér sitjum við fjögur í Flúðaselinu, ekki með neitt í höndunum um Barl. Engar upplýsingar eru komnar í hús og við erum ekki sátt. Fjöldanum öllum af spurningum er ósvarað.... hvað kostar? eigum við bara að mæta með stígvél? hverjar eru reglurnar á Barli? verður löggæsla á svæðinu? þessum spurningum og fjölmörgum öðrum vantar okkur svör við. Nú styttist óðum í þessa miklu samkundu og mannskapurinn fyllist bara af stressi með þessu áframhaldi :)
En annars þá erum við Ómar allavega orðin svaka spennt og erum á fullu að undirbúa....þess vegna er mjög nauðsynlegt að við fáum endanlegt svar frá Unni og Jóni um hvort þau mæti (þar sem leikurinn okkar krefst mikils undirbúnings og er því lokatala á fjölda þátttakenda afar nauðsynleg), við heyrðum því nefnilega fleygt að Jón þyrfti að keppa og þau myndu því sennilega ekki mæta. En eins og ég segi...Unnur þú bara commentar á þetta hjá mér og segir hvort þessi saga eigi við rök að styðjast.
Anyways þá læt ég þetta duga í bili og segi bara.....

ÁFRAM BARL

KV. Guðrún H

1 Comments:

At 5:54 e.h., Blogger Ásdís said...

HA??? unnur og jón ekki með??? ég hitti þau á föstudaginn og þá var bara spenningur í þeim(hélt ég)... og ég hef nú verið í íþróttum það lengi að ég veit að það er sjaldan sem maður veit bara allt í einu að maður á að fara að keppa, nema þegar maður keppir upp fyrir sig sem ég veit að jón gerir ekki..því það er ekki hægt. ÞEss vegna væri það líka mjög gott fyrir mig ef þessar fréttir eiga við rök að styðjast að fá að vita það STRAX vegna þess að það skiptir MJÖG miklu máli hvort maður planar ferð fyrir 8 eða 10 það er mikill munur þar á!!!

 

Skrifa ummæli

<< Home