föstudagur, júlí 02, 2004

mjög fyndið...krefst lesturs...

ooohhhhh ég var búin að skrifa alla söguna en tókst að klúðra puplishingunni.
jæja þá skrifa ég hana bara aftur..ég hef ekkert annað að gera.
en þar sem ég er ein í sveit þá verð ég tíður gestur og blogger á þessari síðu.
en þannig er mál með vexti að ég er búin í vinnunni klukkan sex og þá loka ég upplýsingastofunni miklu. en eftir það sit ég oft hér og skoða netið eða tala við vel valið fólk á msn-inu. svo núna áðan um klukkan sjö þá kemur inn til mín maður(kiddi) og segir að þessi maður sé að leyta að mér(sem stóð hliðiná honum). ég hafði aldrei séð þennan mann áður og hann leit mjög útlendingalega út. svo spyr hann mig hvort ég tali spænsku og ég segist gera það smá. og þá var þetta maðurinn hennar helgu í Burugos:) heheheh hún hafði sent hann hingað að tala við mig:) hehehehehe við töluðum í smá tíma og svo komu vinir hans og ég talaði við þá líka....heheheh ýkt fyndið ég dældí í þá bæklingum og ég veit ekki hvað og hvað:) mér fannst þetta allavega mjög fyndið og vona að ykkur sé skemmt líka.

vonandi verða allir mínir dagar með svona óvæntri uppákomu:) svo núna bíð ég bara eftir gunna hann ætlar að koma til mín og vera allavega eina nótt:) jjjjiiiiibbbbýýýýý

jæja bless í bili...og þetta er fyndin saga..ef þið hlægið ekki þá bara hafiði ekki húmor.

adios
Raven

1 Comments:

At 8:47 e.h., Blogger Ásdís said...

Mjög fyndin saga, mér fannst gaman að lesa hana og ég hlakka til að heyra næstu sögu.
Guðrún H.

 

Skrifa ummæli

<< Home