nojnoj,,bara meme með ullinni og öllu....
kæru frænkur, systur, makar og aðrir sem koma málinu ekki við.
innan skamms munum við fá í hendurnar upplýsingar um barl!!! en eitt gleymdist að taka fram. Stígvél koma sér einkar vel í Barli og þar sem þetta er óvissa get ég ekki sagt afhverju en eitt er víst að ég mun taka stígvél með.
takktakk
gúrígúrígúrígúrí:D
raven

10 Comments:
EIN MJÖG SÁTT Í RIGNINGUNNI
Þetta er svo spennandi.. þannig að þú mælir einnig með regnfötum... en ég verð einnig að segja ykkur að ég er mjög glöð af því að ég er alltaf búin að vera nr41 á biðlista eftir studentagörðum en nú allt í einu í dag er ég númer 34....jibbí..
en allavega gó hrafnhildur ég er ýkt spennt... þarf sundföt eða regnföt... eða þarf sitt eigið nesti?
kv.ásdís
Stígvél???????? Vá en spennó. Ég er spennt sem aldrei fyrr. En hvernig er það Hrafnhildur....ætlar þú bara að hitta okkur í Borgarnesi eða ætlar þú að koma til Rvk fyrst??
ÉG ER HÉR
ÉG ER HÉR
Ég er mjög glöð í dag og hlakka mikið til ferðarinnar. hmmmm hrafnhildur mín, á maður semsagt á hættu að vökna í ferðinni... Villtu kannski að við tökum regnföt meðferðis... en annars er ég mjög glöð í dag af því að við erum búin að vera númer 41 á biðlista eftir studentagörðum í nokkrar vikur en allt í einu í dag erum við númer 34... sjúbbíbabbíbei... kannski við fáum bara íbúð eftir allar martraðirnar ;)....
úhúlakanikali
slembikveðja
ásdís
ps. ég er svo spennt kípopðegúdvork hrafnhildur
Stígvél!!!?
maður er orðinn svo mikill borgardrengur að maður á ekkert stígvél!
en jæja, maður reddar því, setur ruslapoka yfir inniskóna sína eða eitthvað.. :-s
en ein spurning, ég verð aðhlátursefni fyrir þessa spurningu.. en... hvað er BARL?? já eða hver?? ég veit hver Agl var, og Lindar sem var vinur Óla Bjarts... en Barl ??
kv. Ómar Daníel
já ég skal svara þessu ómar minn....
Barl er hann Jón Gísli Barl...en hann er ungur maður sem signý teiknaði og sagði frá en er ekki til... en hún sagði að Jón Gísli Barl væri gamall bekkjarbróðir sinn sem væri óskemmtilegur og stríðinn náungi... Lengri er sagan um Jón Gísla Barl ekki.....
Mér fannst Barl hins vegar svo fagurt orð að ég vildi skýra eitthvað (hlut eða barn eða dýr) Barl.... Ferðin varð bara fyrir valinu.
bæjó
ásdís ól
jæja,mikið erég nú glöð að þið commentið a´greinarnar mínar:) hhmmm varðandi spurningarnar ykkar að þá eigiði von á fleiri upplýsingum í dag eða á morgun...en endilega látið mig vita þegar þið hafið lesið þær.
takktakk
raven
og innilega til hamingju með stöðuna á biðlistanum:)
Sælt veri fólkið ég vildi nú bara athuga hvort gúmmískór myndu nægja ásamt fjólublárri regnhlíf því annars þarf ég að versla töluvert ;) En hvenær verður nelgt niður verðið fyrir ferðina og hvenær verðum við að vera búin að borga, er verðið per mann eða par?
Unnur og blómaskreyttu gúmmískórnir
hhhmmm gúmmítútts.....sko málið er það að við erum ekki beinlínis að fara að vaða í vatni...en við munum vera á stað sem gæti skvett á okkur vatni og við blotnað verulega þannig að ég legg fyrst og fremst til stígvél en annars verða góðu skórnir( sem þarf einnig að hafa meðferðis) að duga..takið bara með nóg af auka sokkum:-)
blessbless í bili....þið hafið ekki hugmynd um hvað við erum að fara að gera:)
Raven
aha foss!!!!
duló
eða kannski hrákakeppni....
ennþá meira duló.
kv áó
PS: þetta var ljóð
Skrifa ummæli
<< Home