Prjónar and Pokerpennies!!!!
Jæja þá er loksins komið að því.....maður ætlar að láta reyna á listræna hæfileika sína og byrja að prjóna. Ég get nú ekki sagt að fólkið í kring um mig hafi mikla trú á mér en ég ætla nú samt að reyna.
Mín ástkæra frænka hún Ásdís ætlar að vera mín stoð og stytta í þessu öllu saman þar sem ég veit ekki einu sinni muninn á sléttu og brugnu. En innst inni í hjarta mínu held ég að ég geti þetta. Ég ætla nú ekki að byrja á neinu flóknu...byrja á teppi. Held að allt annað sé of flókið fyrir mig. En ég er nú samt orðin soldið spennt sko.
Annars er nú bara eitt annað sem ég vil segja og það er: ég vann í Gaur í gær hjá familíunni!!!!!!
Ég var svo glöð, vinn svo sjaldan e-ð.
Jæja er rokin í vinnuna að afgreiða stressað fólk á leiðinni út úr bænum. Bless í bili og hafið það gott yfir helgina.
Guðrún pokerpenny

1 Comments:
hvernig í ósköpunum datt þér í hug að byrja að prjóna??? ég bara spyr?
raven out
Skrifa ummæli
<< Home