mánudagur, júlí 05, 2004

verðmiði á barl....

jæja gott fólk....núna þurfiði að vera dugleg að kíkja á bloggið og commenta því ég hef einungis tæpar 2 vikur í planleggingu og verð að vita ykkar hug sem allra fyrst!!!! þannig er að það sem óvissan mun kosta er 2500 isl.kr. eða 28 evrur. þessi ferð er ólík hinni ferðinni að því leitinu til að hún er kostnaðarsamari, bensínkostnaður meiri og göngin eru dýr, en ég vil nú samt athuga hvort það eru einstaklingar sem eru reiðubúnir að eyða nokkrum hundraðköllum í viðbót svo fríðindin verði meiri. Þá er ég t.d að tala um tilbúið nesti fyrir keppendur óvissuferðarinnar, verðlaun fyrir þá sem standa sig vel o.s.frv. ég veit að þetta er mikill peningur og algjörlega undir ykkur komið hvort við bætum e-u aukalegu við. ÉG reyni eins og ég get að hafa þetta sem ódýrast og auðveldast. vinsamlegast commentið á þetta og látið mig vita hvað ykkur finnst, byrjunarverð er 2500kr, er það of mikið? hversu miklu eruði tilbúin að bæta við?
að lokum vil ég minna alla á að finna leik, já einmitt hvert eitt go einasta par á að koma með leik fyrir hópinn. Í síðustu ferð voru allir leikirnir hver öðrum skemmtilegri og vil ég gjarnan sjá það aftur. Ekki verður gerð athugasemd þó sami leikurinn verði leikinn þessa helgi eins og helgina í febrúar. Einnig vil ég minna guðrúnu og ómar á að taka með sér frænkudjamms lagið, shake ur ass.......
jæja ég held að þetta sé nóg í bili.

blessbless
Raven

17 Comments:

At 1:00 e.h., Blogger Ásdís said...

Eru göngin innifalin í þesssum 2500kr. Ef svo er þá finnst mér þetta ekki dýrt... Núna eru allir að vinna og eiga trúlega meiri peninga heldur en þegar óvissuferðin HAFIÐ var farin. Þess vegna finnst mér allt í lagi að þessi ferð sé aðeins dýrari... ég tými/tími þessu....

ps. Þú stendur þig vel hrafnhildur og þessvegna er ég búin að ákveða að leyfa þér að plana allt svona fyrir mig í framtíðinni...skírnir brúðkaup, nafngiftir, dánardag, ræður, afmæli...osfrv.
Kv. Ásdís Ól

 
At 1:04 e.h., Blogger Ásdís said...

já mikið er ég glöð að heyra það ásdís mín. ég mun glöð plana þetta fyriri þig. en nei göngin eru ekki innifalin. það er ekkert ókeypis í þessum heimi. innifalið í verðinu 2500kr er óvissan eingöngu.
takk
Raven

 
At 1:08 e.h., Blogger Ásdís said...

ok nú er ég ekki alveg að skilja þetta....enda með eindæmum treg kona....ertu að byðja e-n af okkur að búa til nesti og kaupa verðlaun...???
Guðrún

 
At 1:12 e.h., Blogger Ásdís said...

hehehehe nei guðrún mín. bara ef allir eru tilbúnir að borga meira en 2500kr í óvissuferðina, kannski 3000kr, þá gætum við hugsanlega komið með verðlaun og útbúið nesti. en ég veit að það er mikill peningur og skil það vel ef fólk er ekki tilbúið að borga svo mikið. við munum samt reyna að´hafa e-r fríðindi, eftir bestu getu, þó þið séuð ekki tilbúin að borga svona mikið. En segið bara alveg eins og er. mér finnst þetta mikið en ég veit líka hvað er á bak við það þannig að ég sé þetta öðruvísi en þið. segið bara alveg hvað ykkur finnst.
takk
raven

 
At 1:21 e.h., Blogger Ásdís said...

ok bara svo að ég skilji þetta rétt, ertu þá að tala um 3000kr. og það er ekkert innifalið í því. Þ.e. ekki matur og ekki göng eða verðlaun eða neitt solleis? Ég er ekki að setja út á neitt vil bara ná þessu rétt.
kv.
Holy

 
At 1:26 e.h., Blogger Ásdís said...

sko, 2500kr þá er óvissan innifalin og ekkert meira.
3000kr þá gætum við hugsanlega haft nesti eða verðlaun eða bæði.

 
At 1:32 e.h., Blogger Ásdís said...

Gætum við ekki troðið okkur í bíla þá eru göngn ódýrari.. 4-5 í bíl eða svo.. Mun ferðin standa yfir frá fös-sun er það ekki.

 
At 1:32 e.h., Blogger Ásdís said...

Gætum við ekki troðið okkur í bíla þá eru göngn ódýrari.. 4-5 í bíl eða svo.. Mun ferðin standa yfir frá fös-sun er það ekki.
ássís ÓLS

 
At 1:37 e.h., Blogger Ásdís said...

Jújú, mér er alveg sama. Ég punga bara út pening, hvernig sem þetta fer, ég vil náttla ekki missa af þessu. En er þá málið að við látum þig (hh) fá 2500 og við sjáum svo um að koma með okkar mat og drykki og svoleiðis? Ég er alveg sátt við það. Göngin kosta líka bara 1000 kadl þannig að ég efast nú um að það setji fólk alveg á hausinn sko. Þannig að málin standa þannig að við látum þig fá þennan pening og sjáum svo um restina sjálf????
Holy

 
At 2:00 e.h., Blogger Ásdís said...

já...við skulum ekki fara of hratt...þið sem þekkið mig vitið að e´g er samningamanneskja dauðans og er núna að prútta og prútta og þetta er alveg að lækka í verði skal ég segja ykkur. ég býst ekkert endilega við því að þetta fari uppfyrir 2500kr. ég er að kanna alla möguleika. en þið fáið fríðindi því lofa ég:) þetta verður ógleymanleg ferð þar sem enginn verður svangur.
kv.
Raven

 
At 2:12 e.h., Blogger Ásdís said...

Já já já ég er alveg til í að borga þetta. Þetta er farið að hljóma svo spennandi. Líka þegar við erum að fara í gegnum göngin nokkur í bíl þá er það nú ekki mikið á mann. Ég er tilbúin í þetta mál. En hvenær viltu Hrafnhildur mín fá peninginn??? Eigum við að leggja inn á þig eða bara mæta með pengene??

Guðrún

 
At 2:25 e.h., Blogger Ásdís said...

jamm og jæja frænkur og systkin og kærasta og og og og... já og bara allir... hef ekki mikið um þetta að segja, ég treysti HH algjörlega og ef þetta mun fara í það að ég þurfi að borga 12.000, þá mun ég ... tjah ekki borga en 3000 kall er alveg viðráðanlegt...
GO HRAFNHILDUR!!! ÓVISSUFERÐ, ÓVISSUFERÐ, ÓVISSUFERÐ!!

Kv. Ómar Daníel.

 
At 2:50 e.h., Blogger Ásdís said...

hhhmmm ég veit ekki enþá hvenær ég vil fá peninginn aþþí að ég veit ekki enþá hversu mikinn pening ég vil.. þetta kemur í ljós á næstu dögum þegar ég er búin að semja úr mér hjartað.
en munið bara eftir leikjunum!!!!!
er e-r búinn að heyra í unni, ég hef ekkert heyrt og skrifar ekkert inná, hvorki hér né á blomarós!! where are u unnur maría...
kv.
raven

 
At 3:34 e.h., Blogger Ásdís said...

já ég tími útaf því að hrafnhildur er svo nýtískuleg... en samt sem áður er þessi ferð frá fös til sunnudags eða hvað....semsagt 2 nætur eða 1 nótt.........´vúúúpha.. þetta verður svo skemmtilegt..

kv.

Ásdís mergjaða

 
At 4:10 e.h., Blogger Ásdís said...

já þessi ferð r frá föstudegi til sunnudags...brottför frá reykjavík þegar vinnan er búin á föstudegi, áætluð heimkoma...fer eftir því hvenær andi vaknar;) nei djók...bara þegar allireru vaknaðir og reddí til að fara heim
kv
Raven

 
At 8:07 e.h., Blogger Ásdís said...

5 frænknu
mikið eru margir búnir að skrifa hér og er það gaman.... en mér finnst líka allt í lagi þó það sé ekkert dásamlegur matur í ferðinni.. bara mjög ódýr matur eða svo kannski bara allir komi með sinn mat

ása dís skvís allways on fire.

 
At 8:13 e.h., Blogger Ásdís said...

Hæ hæ ég hef ekkert skrifað því ég hef ekkert komist inn á þetta dót undir þessu aglogbarl.blogspot.com en núna tókst þetta með engum smá krókaleiðum. En allavega í sambandi við Barl: Hjalta langar ekki með sem er kannski alveg skiljanlegt þar sem hann er nú enn á smávegis gelgju og allt sem er blóðtengt er ekki voða spennandi en ég og Jón Orri erum að vonast til að geta mætt á svæðið en það yrði að öllum lýkindum bara fyrir eina nótt (lau) þar sem Hjalti kemur þá til með að passa Tómas og ég er ekki alveg að til í að skemma alla helgina fyrir honum svo að ég ætla að vera góð systir í þetta sinn og vera bara eina nótt. En varðandi verð á þessari ferð þá verð ég nú bara að segja að þar sem ég er algerlega á kúpunni eftir alltof mikla eyðslu á spáni og ömurleg laun í ömulegri vinnu sem ég hata (sorry varð að fá smá útrás) þá er eiginlega allur umframmkostnaður voða erfiður fyrir mig og vildi ég helst óska þess að hann yrði í lágmarki því ég vil endilega koma með.
Kveðja Unnur Fátæka

 

Skrifa ummæli

<< Home